Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2015. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.
Þann 13. febrúar 2013 tóku gildi breytingar á lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999, (lífsskoðunarfélög, aðild barna að skráðum trú- eða lífsskoðunarfélögum o.fl.). Þessar lagabreytingar miðuðu að því að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á við stöðu skráðra trúfélaga. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna lista yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Verklag við skráningu á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild var breytt í kjölfar gildistöku lagabreytinganna sem m.a. hafði þau áhrif að einstaklingum með stöðuna ótilgreint trú- eða lífsskoðunarfélag hefur fjölgað. Meginbreytingin var að börn eru nú skráð í ótilgreint trúfélag við fæðingu ef foreldrar sem fara sameiginlega með forsjá eru í sitthvoru trú- eða lífskoðunarfélaginu. Jafnframt er skráning erlends ríkisborgara úr stöðunni ótilgreint í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag á grundvelli tilkynningar frá honum nú talin til breytinga.
Hér fylgja nokkrar töflur með greiningu á breytingum sem hafa orðið á tímabilinu.
Úr Þjóðkirkjunni gengu 957 fleiri en í hana á tímabilinu. Úr fríkirkjunum þrem gengu 12 fleiri en í þær og 309 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í lífsskoðunarfélagið Siðmennt gengu 85 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 769 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótilgreint trúfélag voru 194 færri skráðir en fluttust úr þeim flokki.
Breytingar á félagsaðild skráðar frá og með 1. janúar til 31. mars 2015
Fyrri félagsaðild | |||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Ný félagsaðild | Alls | Þjóðkirkjan | Fríkirkjur | Önnur skráð trúfélög | Lífssk.félög | Utan félaga | Ótilgreint |
Alls | 1719 | 1108 | 110 | 142 | 9 | 107 | 243 |
Þjóðkirkjan | 151 | • | 33 | 32 | 1 | 12 | 73 |
Fríkirkjur | 98 | 73 | 4 | 6 | – | 3 | 12 |
Önnur skráð trúfélög | 451 | 179 | 22 | 43 | 4 | 63 | 140 |
Lífsskoðunarfélög | 94 | 50 | 10 | 5 | – | 28 | 1 |
Utan trúfélaga | 876 | 767 | 41 | 48 | 3 | – | 17 |
Ótilgreint | 49 | 39 | – | 8 | 1 | 1 | • |
Miðað er við vinnsludag.
Fríkirkjur: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn í Reykjavík, Fríkirkjan í Hafnarfirði.
Til þess að taka dæmi úr töflunni hér fyrir ofan þýða tölurnar að alls gengu 1108 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. janúar til 31. mars 2015. Af þeim 1108 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 73 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 151 í þjóðkirkjuna, þar af voru 33 áður í fríkirkjum.
Eftirfarandi töflur eru yfirlit um fjölda þeirra sem skiptu um trú- eða lífsskoðunarfélag á 1. ársfjórðungi 2015, annars vegar eftir því í hvaða félag þeir gengu og hinsvegar úr hvaða félagi þeir komu.
Flokkað eftir kyni
Ný félagsaðild | Alls | Þjóðkirkjan | Fríkirkjur | Önnur skráð trúfélög | Lífssk.félög | Utan félaga | Ótilgreind |
---|---|---|---|---|---|---|---|
Karlar | 989 | 70 | 45 | 271 | 52 | 524 | 27 |
Konur | 730 | 81 | 53 | 180 | 42 | 352 | 22 |
Fyrri félagsaðild | Alls | Þjóðkirkjan | Fríkirkjur | Önnur skráð trúfélög | Lífssk.félög | Utan félaga | Ótilgreind |
Karlar | 989 | 666 | 63 | 69 | 6 | 62 | 123 |
Konur | 730 | 442 | 47 | 73 | 3 | 45 | 120 |
Flokkað eftir fæðingarári
Ný félagsaðild | Alls | Þjóðkirkjan | Fríkirkjur | Önnur skráð trúfélög | Lífssk.félög | Utan félaga | Ótilgreint |
---|---|---|---|---|---|---|---|
Alls | 1570 | 73 | 74 | 420 | 93 | 864 | |
1940 og fyrr | 11 | 2 | – | 4 | 3 | 1 | 1 |
1941-1945 | 6 | 2 | – | – | 1 | 3 | – |
1946-1950 | 18 | 3 | 5 | 4 | 1 | 5 | – |
1951-1955 | 41 | 7 | 2 | 10 | 5 | 14 | 3 |
1956-1960 | 57 | 8 | 2 | 19 | 4 | 22 | 2 |
1961-1965 | 60 | 4 | 3 | 18 | 8 | 25 | 2 |
1966-1970 | 71 | 7 | 3 | 22 | 3 | 35 | 1 |
1971-1975 | 114 | 8 | 10 | 30 | 12 | 52 | 2 |
1976-1980 | 145 | 6 | 11 | 53 | 16 | 59 | – |
1981-1985 | 223 | 13 | 11 | 69 | 8 | 112 | 10 |
1986-1990 | 387 | 5 | 15 | 91 | 16 | 250 | 10 |
1991-1995 | 345 | 2 | 5 | 76 | 13 | 236 | 13 |
1996 - 2000 | 74 | 1 | 5 | 19 | 3 | 44 | 2 |
2001 -2005 | 18 | 5 | 2 | 5 | – | 6 | – |
2006-2010 | 21 | 2 | 3 | 11 | – | 4 | 1 |
2011 og síðar | 128 | 76 | 21 | 20 | 1 | 8 | 2 |
Fyrri félagsaðild | Alls | Þjóðkirkjan | Fríkirkjur | Önnur skráð trúfélög | Lífssk.félög | Utan félaga | Ótilgreint |
Alls | 1719 | 1108 | 110 | 142 | 9 | 107 | |
1940 og fyrr | 11 | 6 | 3 | – | – | 2 | – |
1941-1945 | 6 | 3 | 2 | – | – | 1 | – |
1946-1950 | 18 | 10 | 2 | 5 | – | 1 | – |
1951-1955 | 41 | 21 | 5 | 7 | 2 | 4 | 2 |
1956-1960 | 57 | 29 | 7 | 7 | – | 8 | 6 |
1961-1965 | 60 | 35 | 4 | 6 | – | 7 | 8 |
1966-1970 | 71 | 44 | 6 | 9 | – | 7 | 5 |
1971-1975 | 114 | 74 | 6 | 12 | 1 | 9 | 12 |
1976-1980 | 145 | 80 | 14 | 18 | 1 | 13 | 19 |
1981-1985 | 223 | 141 | 16 | 24 | – | 15 | 27 |
1986-1990 | 387 | 296 | 17 | 19 | 2 | 21 | 32 |
1991-1995 | 345 | 282 | 17 | 12 | 3 | 15 | 16 |
1996 - 2000 | 74 | 60 | 3 | 4 | – | 1 | 6 |
2001 -2005 | 18 | 8 | 2 | 3 | – | 1 | 4 |
2006-2010 | 21 | 6 | 1 | 6 | – | – | 8 |
2011 og síðar | 128 | 13 | 5 | 10 | – | 2 | 98 |
Höfuðborgarsvæðið: Reykjavík, Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur, Seltjarnarnes, Mosfellsbær og Kjósarhreppur.
Smelltu hér til þess að skoða gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.