Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í janúar 2016.
Heildarfjöldi samninga á landinu var 820 í janúar 2016 og fjölgar þeim um 26,7% frá desember 2015 en fækkar um 3,5% frá janúar 2015.
Svæði | Janúar 2015 | Desember 2015 | Janúar 2016 | Breyting milli ára | Breyting milli mánaða |
---|---|---|---|---|---|
Höfuðborgarsvæðið | 583 | 403 | 550 | -5,7% | 36,5% |
Suðurnes | 96 | 108 | 94 | -2,1% | -13,0% |
Vesturland | 41 | 31 | 38 | -7,3% | 22,6% |
Vestfirðir | 7 | 3 | 4 | -42,9% | 33,3% |
Norðurland | 76 | 50 | 74 | -2,6% | 48,0% |
Austurland | 9 | 16 | 16 | 77,8% | 0% |
Suðurland | 38 | 36 | 44 | 15,8% | 22,2% |
Samtals | 850 | 647 | 820 | -3,5% | 26,7% |
Smelltu hér til að skoða tímaraðir frá árinu 2005 í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.