Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.
Í janúar 2016 var 88 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 6.879 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 28 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Á sama tíma var 51 skjali (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 1.437 milljónir króna.
Á sama tíma voru 44 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 2.935 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 2.481 milljón króna. Af þessum samningum voru 14 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Á sama tíma voru 18 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 739 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 508 milljónir króna.
Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.