Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 26. febrúar til og með 3. mars 2016 var 152. Þar af var 121 samningur um eignir í fjölbýli, 23 samningar um sérbýli og 8 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 6.557 milljónir króna og meðalupphæð á samning 43,1 milljón króna.
Á sama tíma var 28 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 15 samningar um eignir í fjölbýli, 7 samningar um sérbýli og 6 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 555 milljónir króna og meðalupphæð á samning 19,8 milljónir króna.
Á sama tíma var 19 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 12 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 532 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28 milljónir króna.
Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af voru 4 samningar um eignir í fjölbýli og 8 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 271 milljón króna og meðalupphæð á samning 22,5 milljónir króna.
Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.
Svæði | Samtals | Fjölbýli | Sérbýli | Aðrar eignir | Meðaltal sl. 12 vikna |
---|---|---|---|---|---|
Höfuðborgarsvæðið | |||||
Reykjavík | 83 | 74 | 7 | 2 | 71 |
Seltjarnarnes | 5 | 3 | 2 | 0 | 3 |
Mosfellsbær | 9 | 3 | 4 | 2 | 6 |
Kópavogur | 21 | 19 | 2 | 0 | 27 |
Hafnarfjörður | 27 | 17 | 6 | 4 | 22 |
Garðabær | 7 | 5 | 2 | 0 | 10 |
Samtals | 152 | 121 | 23 | 8 | 139 |
Velta (millj. kr.) | 6.557 | 6.174 | |||
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) | 43,1 | 44,5 | |||
Suðurnes | 28 | 15 | 7 | 6 | 18 |
Velta (millj. kr.) | 555 | 456 | |||
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) | 19,8 | 25,6 | |||
Akureyri | 19 | 12 | 5 | 2 | 10 |
Velta (millj. kr.) | 532 | 264 | |||
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) | 28 | 27,1 | |||
Árborgarsvæðið | 12 | 4 | 8 | 0 | 11 |
Velta (millj. kr.) | 271 | 302 | |||
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) | 22,5 | 26,5 |
* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.
Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.