Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í apríl 2016.
Heildarfjöldi samninga á landinu var 587 í apríl 2016 og fækkar þeim um 7% frá mars 2016 en fjölgar um 168% frá apríl 2015. Athuga ber að á þessum tíma í fyrra var verkfall lögfræðinga hjá Sýslumannsembætti höfuðborgarsvæðisins í gangi.
Svæði | Apríl 2015 | Mars 2016 | Apríl 2016 | Breyting milli ára | Breyting milli mánaða |
---|---|---|---|---|---|
Höfuðborgarsvæðið | 22 | 413 | 400 | 1718,2% | -3,1% |
Suðurnes | 79 | 111 | 76 | -3,8% | -31,5% |
Vesturland | 22 | 20 | 24 | 9,1% | 20,0% |
Vestfirðir | 2 | 9 | 6 | 200,0% | -33,3% |
Norðurland | 54 | 45 | 42 | -22,2% | -6,7% |
Austurland | 9 | 9 | 5 | -44,4% | -44,4% |
Suðurland | 31 | 24 | 34 | 9,7% | 41,7% |
Samtals | 219 | 631 | 587 | 168,0% | -7,0% |
Smelltu hér til að skoða tímaraðir frá árinu 2005 í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.