Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júní 2016 var 614. Heildarvelta nam 25,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 42 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 15,9 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 7,9 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 2 milljörðum króna.
Þegar júní 2016 er borinn saman við maí 2016 fjölgar kaupsamningum um 1,7% og velta minnkar um 8,3%. Í maí 2016 var 604 kaupsamningum þinglýst, velta nam 28,1 milljarði króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 46,6 milljónir króna.
Þegar júní 2016 er borinn saman við júní 2015 fjölgar kaupsamningum um 82,7% og velta eykst um 105,3%. Í júní 2015 var 336 kaupsamningum þinglýst, velta nam 12,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 37,4 milljónir króna.
Makaskiptasamningar voru 8 í júní 2016 eða 1,4% af öllum samningum. Í maí 2016 voru makaskiptasamningar 9 eða 1,6% af öllum samningum. Í júní 2015 voru makaskiptasamningar 7 eða 2,2% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.
Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.
Maí 2016 |
Júní 2016 |
Breyting |
|||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
||
Fjölbýli |
16.585 |
420 |
15.881 |
440 |
-4,2% |
4,8% |
|
Sérbýli |
8.739 |
140 |
7.929 |
138 |
-9,3% |
-1,4% |
|
Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði |
2.821 |
44 |
2.007 |
36 |
-28,9% |
-18,2% |
|
Samtals |
28.145 |
604 |
25.816 |
614 |
-8,3% |
1,7% |
|
Júní 2015 |
Júní 2016 |
Breyting |
|||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
||
Fjölbýli |
8.472 |
254 |
15.881 |
440 |
87,5% |
73,2% |
|
Sérbýli |
3.114 |
63 |
7.929 |
138 |
154,6% |
119,0% |
|
Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði |
988 |
19 |
2.007 |
36 |
103,1% |
89,5% |
|
Samtals |
12.574 |
336 |
25.816 |
614 |
105,3% |
82,7% |
|
|
Júní 2015
|
Maí 2016
|
Júní 2016
|
Breyting á milli ára
|
Breyting á milli mánaða
|
---|---|---|---|---|---|
Samningar
|
318
|
560
|
578
|
81,8%
|
3,2%
|
Makaskipti eða lausafé
|
8
|
10
|
8
|
0,0%
|
-20,0%
|
Makaskipti
|
7
|
9
|
8
|
14,3%
|
-11,1%
|
Lausafé
|
1
|
1
|
0
|
-
|
-
|
Hlutfall makaskipta
|
2,2%
|
1,6%
|
1,4%
|
-
|
-
|
Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.