Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.
Í ágúst 2016 var 44 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.796 milljónir króna. Af þessum skjölum var 21 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Á sama tíma var 39 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 406 milljónir króna.
Á sama tíma voru 24 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 1.463 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 923 milljónir króna. Af þessum samningum voru 10 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.
Á sama tíma voru 21 kaupsamningur um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 250 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 191 milljón króna.
Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.