Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í september 2016.
Heildarfjöldi samninga á landinu var 1334 í september 2016 og fjölgar þeim um 61,3% frá ágúst 2016 en fækkar um 1,5% frá september 2015.
Svæði | September 2015 | Ágúst 2016 | September 2016 | Breyting milli ára | Breyting milli mánaða |
---|---|---|---|---|---|
Höfuðborgarsvæðið | 752 | 439 | 827 | 10,0% | 88,4% |
Suðurnes | 120 | 94 | 94 | -21,7% | 0,0% |
Vesturland | 103 | 92 | 111 | 7,8% | 20,7% |
Vestfirðir | 19 | 7 | 4 | -78,9% | -42,9% |
Norðurland | 277 | 156 | 242 | -12,6% | 55,1% |
Austurland | 31 | 11 | 20 | -35,5% | 81,8% |
Suðurland | 53 | 28 | 36 | -32,1% | 28,6% |
Samtals | 1355 | 827 | 1334 | -1,5% | 61,3% |
Smelltu hér til að skoða tímaraðir frá árinu 2005 í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.