Þjóðskrá14. október 2016

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild 3. ársfjórðungur 2016

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningu einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. júlí til 30. september 2016. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrár Íslands. Þar sem skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman tölur um breytingar á skráningum einstaklinga í þjóðskrá úr einu trú- og/eða lífsskoðunarfélagi í annað á tímabilinu 1. júlí til 30. september 2016. Tölurnar taka til allra skráðra einstaklinga óháð lögheimili, hvort heldur einstaklingur er búsettur á Íslandi eða erlendis. Tölurnar veita upplýsingar um fjölda skráðra breytinga á grundvelli tilkynninga sem berast til Þjóðskrá Íslands. Þar sem að skráningin byggir einungis á tilkynningum til þjóðskrár þarf hún ekki að endurspegla trúarskoðanir einstaklinga. Vert er að benda á að  skráning erlends ríkisborgara eða barns úr stöðunni ótilgreint trúfélag (óupplýst) í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag telst til breytinga.

Þann 13. febrúar 2013 tóku gildi breytingar á lögum um skráð trúfélög nr. 108/1999, (lífsskoðunarfélög, aðild barna að skráðum trú- eða  lífsskoðunarfélögum o.fl.).  Þessar lagabreytingar miðuðu að því að jafna stöðu lífsskoðunarfélaga á við stöðu skráðra trúfélaga. Á vef innanríkisráðuneytisins er að finna lista yfir skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög. Verklag við skráningu á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild var breytt í kjölfar gildistöku lagabreytinganna sem m.a. hafði þau áhrif að einstaklingum með stöðuna ótilgreint trú- eða lífsskoðunarfélag hefur fjölgað. Meginbreytingin var að börn eru nú skráð í ótilgreint trúfélag við fæðingu ef foreldrar sem fara sameiginlega með forsjá eru í sitthvoru trú- eða lífskoðunarfélaginu. Jafnframt er skráning erlends ríkisborgara úr stöðunni ótilgreint í tiltekið trú- eða lífsskoðunarfélag á grundvelli tilkynningar frá honum nú talin til breytinga.

Hér fylgja nokkrar töflur með greiningu á breytingum sem hafa orðið á tímabilinu. 

Úr Þjóðkirkjunni gengu 446 fleiri en í hana á tímabilinu. Í fríkirkjurnar þrjár gengu 123 fleiri en úr þeim og 202 fleiri í önnur trúfélög en úr þeim. Í lífsskoðunarfélagið Siðmennt gengu 62 fleiri en úr því. Nýskráðir utan félaga voru 346 fleiri en gengu í félög eftir að hafa verið utan félaga og í ótilgreint trúfélag voru 287 færri skráðir en fluttust úr þeim flokki.

Breytingar á trú- og lífsskoðunarfélagsaðild skráðar 1. júlí-30.september 2016 

Fyrri félagsaðild
Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1239 621 69 153 3 69 324
Þjóðkirkjan 175 37 31 17 90
Fríkirkjur 192 137 5 11 7 32
Önnur skráð trúfélög 355 97 11 33 3 24 187
Lífsskoðunarfélög 65 28 3 10 20 4
Utan trúfélaga 415 331 13 60 11
Ótilgreint 37 28 8 1

Miðað er við vinnsludag. 
Fríkirkjur: Fríkirkjan í Reykjavík, Óháði söfnuðurinn í Reykjavík, Fríkirkjan í Hafnarfirði.

Til þess að taka dæmi úr töflunni hér fyrir ofan þýða tölurnar að alls gengu 621 úr þjóðkirkjunni á tímabilinu 1. júlí  til 30. september  2016. Af þeim 621 sem gengu úr þjóðkirkjunni skráðu 137 sig í fríkirkjur. Á sama tíma gengu 175 í þjóðkirkjuna, þar af voru 37 áður í fríkirkjum.

Eftirfarandi töflur eru yfirlit um fjölda þeirra sem skiptu um trú- eða lífsskoðunarfélag á 3. ársfjórðungi 2016, annars vegar eftir því í hvaða félag þeir gengu og hinsvegar úr hvaða félagi þeir komu.

 Flokkað eftir kyni

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 512 24 48 181 34 210 15
Konur 16 ára og eldri 467 43 57 127 31 187 22
Börn 15 ára og yngri 260 108 87 47 18
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreind
Karlar 16 ára og eldri 512 293 24 75 1 35 84
Konur 16 ára og eldri 467 257 31 63 2 28 86
Börn 15 ára og yngri 260 71 14 15 6 154

Aldur 30. september 2016

 

Flokkað eftir fæðingarári

Ný félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1014 77 118 318 65 399
1940 og fyrr 16 2 1 2 9 2
1941-1945 15 3 1 9 2
1946-1950 26 3 2 4 1 11 5
1951-1955 40 2 7 11 2 18
1956-1960 41 1 10 9 2 18 1
1961-1965 53 9 3 18 4 19
1966-1970 54 5 8 14 2 24 1
1971-1975 81 9 11 20 8 32 1
1976-1980 119 12 16 38 10 40 3
1981-1985 134 8 19 54 10 40 3
1986-1990 173 12 19 51 10 75 6
1991-1995 150 4 4 53 11 70 8
1996 - 2000 78 3 1 34 3 32 5
2001 -2005 34 9 13 10 2
2006-2010 39 5 14 12 8
2011-2015 74 26 28 13 7
2016 112 67 32 12 1
Fyrri félagsaðild Alls Þjóðkirkjan Fríkirkjur Önnur skráð trúfélög Lífssk.félög Utan félaga Ótilgreint
Alls 1127 610 65 151 3 66
1940 og fyrr 16 14 1 1
1941-1945 15 12 2 1
1946-1950 26 18 4 2 1 1
1951-1955 40 30 2 3 3 2
1956-1960 41 27 3 5 2 4
1961-1965 53 29 5 6 7 6
1966-1970 54 31 5 8 3 7
1971-1975 81 39 10 12 8 12
1976-1980 119 58 5 22 1 9 24
1981-1985 134 68 7 14 1 7 37
1986-1990 173 85 7 34 12 35
1991-1995 150 89 4 20 8 29
1996 - 2000 78 50 1 10 1 3 13
2001 -2005 34 17 5 6 6
2006-2010 39 22 2 3 1 11
2011-2015 74 21 3 4 1 45
2016 112 11 4 2 3 92

 

 

Smelltu hér til þess að skoða gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar