Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í nóvember 2016.
Heildarfjöldi samninga á landinu var 566 í nóvember 2016 og fækkar þeim um 16,3% frá október 2016 og um 31,1% frá nóvember 2015.
Svæði | Nóvember 2015 | Október 2016 | Nóvember 2016 | Breyting milli ára | Breyting milli mánaða |
---|---|---|---|---|---|
Höfuðborgarsvæðið | 528 | 438 | 344 | -34,8% | -21,5% |
Suðurnes | 124 | 73 | 86 | -30,6% | 17,8% |
Vesturland | 28 | 39 | 27 | -3,6% | -30,8% |
Vestfirðir | 11 | 9 | 9 | -18,2% | 0% |
Norðurland | 63 | 69 | 61 | -3,2% | -11,6% |
Austurland | 10 | 13 | 5 | -50% | -61,5% |
Suðurland | 58 | 35 | 34 | -41,4% | -2,9% |
Samtals | 822 | 676 | 566 | -31,1% | -16,3% |
Smelltu hér til að skoða tímaraðir frá árinu 2005 í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.