Þjóðskrá20. desember 2016

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í nóvember 2016

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 508,2 stig í nóvember 2016 (janúar 1994=100) og hækkaði um 1,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,7%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 9,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 14,8%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 508,2 stig í nóvember 2016  (janúar 1994=100) og hækkaði um 1,4% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 3,7%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 9,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 14,8%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir stærð og hvort það telst fjölbýli eða sérbýli. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 9 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 24 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun fasteignaverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.

Ef þú vilt skoða tímaröð fyrir vísitöluna, þá getur þú smellt hér til að skoðað gögnin í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

Vísitala íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu fyrir desember 2016 verður birt 18. janúar n.k.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar