Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 162,7 stig í janúar 2017 (janúar 2011=100) og hækkar um 1,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 11,5%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.
Leiguverð
Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í janúar 2017.
Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 564 samningar, sem þinglýst var í janúar 2017. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í janúar 2017 eru því unnar upp úr 394 leigusamningum sem þinglýst var í janúar 2017.
Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í janúar 2017 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.
Stúdíó íbúð |
2 herbergja |
3 herbergja |
4-5 herbergja |
|
---|---|---|---|---|
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes |
3444 |
3064 |
2395 |
2129 |
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar |
- |
2570 |
2563 |
2015 |
Kópavogur |
- |
2561 |
2035 |
1892 |
Garðabær og Hafnarfjörður |
- |
2313 |
2163 |
1529 |
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur |
3335 |
2368 |
2097 |
1823 |
Breiðholt |
- |
2499 |
2115 |
1877 |
Kjalarnes og Mosfellsbær |
- |
2117 |
2324 |
1557 |
Suðurnes |
- |
1586 |
1581 |
1322 |
Vesturland |
- |
2207 |
1420 |
1131 |
Vestfirðir |
- |
- |
- |
- |
Norðurland nema Akureyri |
- |
1373 |
1166 |
971 |
Akureyri |
- |
1993 |
1983 |
1265 |
Austurland |
- |
- |
1171 |
- |
Suðurland |
- |
1611 |
1449 |
1072 |
Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.