Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í júlí 2017 var 658. Heildarvelta nam 34,7 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 52,8 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 21,8 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,9 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 4 milljörðum króna.
Þegar júlí 2017 er borinn saman við júní 2017 fjölgar kaupsamningum um 8,2% og velta eykst um 5,3%. Í júní 2017 var 608 kaupsamningum þinglýst, velta nam 33 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 54,2 milljónir króna.
Þegar júlí 2017 er borinn saman við júlí 2016 fjölgar kaupsamningum um 4,3% og velta eykst um 29,6%. Í júlí 2016 var 631 kaupsamningi þinglýst, velta nam 26,8 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 42,5 milljónir króna.
Makaskiptasamningar voru 10 í júlí 2017 eða 1,6% af öllum samningum. Í júní 2017 voru makaskiptasamningar 12 eða 2,1% af öllum samningum. Í júlí 2016 voru makaskiptasamningar 14 eða 2,3% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.
Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.
Júní 2017 |
Júlí 2017 |
Breyting |
|||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
||
Fjölbýli |
23.117 |
462 |
21.809 |
490 |
-5,7% |
6,1% |
|
Sérbýli |
8.130 |
118 |
8.943 |
122 |
10,0% |
3,4% |
|
Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði |
1.732 |
28 |
3.960 |
46 |
128,7% |
64,3% |
|
Samtals |
32.979 |
608 |
34.712 |
658 |
5,3% |
8,2% |
|
Júlí 2016 |
Júlí 2017 |
Breyting |
|||||
---|---|---|---|---|---|---|---|
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
||
Fjölbýli |
18.286 |
476 |
21.809 |
490 |
19,3% |
2,9% |
|
Sérbýli |
7.430 |
129 |
8.943 |
122 |
20,4% |
-5,4% |
|
Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði |
1.074 |
26 |
3.960 |
46 |
268,9% |
76,9% |
|
Samtals |
26.790 |
631 |
34.712 |
658 |
29,6% |
4,3% |
|
|
Júlí 2016
|
Júní 2017
|
Júlí 2017
|
Breyting á milli ára
|
Breyting á milli mánaða
|
---|---|---|---|---|---|
Samningar
|
605
|
580
|
612
|
1,2%
|
5,5%
|
Makaskipti eða lausafé
|
14
|
12
|
10
|
-28,6%
|
-16,7%
|
Makaskipti
|
14
|
12
|
10
|
-28,6%
|
-16,7%
|
Lausafé
|
0
|
0
|
0
|
-
|
-
|
Hlutfall makaskipta
|
2,3%
|
2,1%
|
1,6%
|
-
|
-
|
Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.