Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 15. september til og með 21. september 2017 var 112. Þar af voru 85 samningar um eignir í fjölbýli, 18 samningar um sérbýli og 9 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 5.543 milljónir króna og meðalupphæð á samning 49,5 milljónir króna.
Á sama tíma var 10 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 3 samningar um eignir í fjölbýli og 7 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 339 milljónir króna og meðalupphæð á samning 33,9 milljónir króna.
Á sama tíma var 15 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 10 samningar um eignir í fjölbýli, 2 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 405 milljónir króna og meðalupphæð á samning 27 milljónir króna.
Á sama tíma var 18 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af voru 2 samningar um eignir í fjölbýli, 15 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eign en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 466 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,9 milljónir króna.
Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.
Svæði |
Samtals | Fjölbýli | Sérbýli | Aðrar eignir | Meðaltal sl. 12 vikna |
---|---|---|---|---|---|
Höfuðborgarsvæðið | |||||
Reykjavík | 55 | 45 | 7 | 3 | 69 |
Seltjarnarnes | 3 | 1 | 2 | 0 | 2 |
Mosfellsbær | 6 | 2 | 1 | 3 | 9 |
Kópavogur | 15 | 12 | 1 | 2 | 20 |
Hafnarfjörður | 16 | 15 | 1 | 0 | 18 |
Garðabær | 17 | 10 | 6 | 1 | 10 |
Samtals | 112 | 85 | 18 | 9 | 129 |
Velta (millj. kr.) | 5.543 | 6.450 | |||
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) | 49,5 | 50 | |||
Suðurnes | 10 | 3 | 7 | 0 | 14 |
Velta (millj. kr.) | 339 | 431 | |||
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) | 33,9 | 31,6 | |||
Akureyri | 15 | 10 | 2 | 3 | 14 |
Velta (millj. kr.) | 405 | 464 | |||
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) | 27 | 32,6 | |||
Árborgarsvæðið | 18 | 2 | 15 | 1 | 14 |
Velta (millj. kr.) | 466 | 371 | |||
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) | 25,9 | 27 |
* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.
Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.