Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í september 2017 var 482. Heildarvelta nam 23,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 48,2 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 16,1 milljarði, viðskipti með eignir í sérbýli 5,2 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 1,9 milljörðum króna.
Þegar september 2017 er borinn saman við ágúst 2017 fækkar kaupsamningum um 9,7% og velta minnkar um 9,4%. Í ágúst 2017 var 534 kaupsamningum þinglýst, velta nam 25,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 48 milljónir króna.
Þegar september 2017 er borinn saman við september 2016 fækkar kaupsamningum um 24,2% og velta minnkar um 19,8%. Í september 2016 var 636 kaupsamningum þinglýst, velta nam 28,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 45,5 milljónir króna.
Makaskiptasamningar voru 6 í september 2017 eða 1,3% af öllum samningum. Í ágúst 2017 voru makaskiptasamningar 3 eða 0,6% af öllum samningum. Í september 2016 voru makaskiptasamningar 17 eða 2,8% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.
Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.
Ágúst 2017 |
September 2017 |
Breyting |
||||
---|---|---|---|---|---|---|
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
|
Fjölbýli |
16.654 |
397 |
16.053 |
377 |
-3,6% |
-5,0% |
Sérbýli |
7.234 |
102 |
5.248 |
70 |
-27,4% |
-31,4% |
Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði |
1.745 |
35 |
1.911 |
35 |
9,5% |
0,0% |
Samtals |
25.632 |
534 |
23.212 |
482 |
-9,4% |
-9,7% |
September 2016 |
September 2017 |
Breyting |
||||
---|---|---|---|---|---|---|
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
|
Fjölbýli |
19.424 |
475 |
16.053 |
377 |
-17,4% |
-20,6% |
Sérbýli |
7.292 |
126 |
5.248 |
70 |
-28,0% |
-44,4% |
Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði |
2.229 |
35 |
1.911 |
35 |
-14,3% |
0,0% |
Samtals |
28.945 |
636 |
23.212 |
482 |
-19,8% |
-24,2% |
|
September 2016
|
Ágúst 2017
|
September 2017
|
Breyting á milli ára
|
Breyting á milli mánaða
|
---|---|---|---|---|---|
Samningar
|
601
|
499
|
447
|
-25,6%
|
-10,4%
|
Makaskipti eða lausafé
|
19
|
4
|
8
|
-57,9%
|
100,0%
|
Makaskipti
|
17
|
3
|
6
|
-64,7%
|
100,0%
|
Lausafé
|
2
|
1
|
2
|
-
|
-
|
Hlutfall makaskipta
|
2,8%
|
0,6%
|
1,3%
|
-
|
-
|
Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.