Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman upplýsingar um fjölda þinglýstra leigusamninga um íbúðarhúsnæði eftir landshlutum í desember 2017.
Heildarfjöldi samninga á landinu var 478 í desember 2017 og fækkar þeim um 25,8% frá nóvember 2017 og um 17,6% frá desember 2016.
Svæði | Desember 2016 | Nóvember 2017 | Desember 2017 | Breyting milli ára | Breyting milli mánaða |
---|---|---|---|---|---|
Höfuðborgarsvæðið | 382 | 448 | 285 | -25,4% | -36,4% |
Suðurnes | 80 | 55 | 69 | -13,8% | 25,5% |
Vesturland | 18 | 24 | 28 | 55,6% | 16,7% |
Vestfirðir | 10 | 10 | 9 | -10,0% | -10,0% |
Norðurland | 50 | 60 | 49 | -2,0% | -18,3% |
Austurland | 5 | 9 | 10 | 100,0% | 11,1% |
Suðurland | 35 | 38 | 28 | -20,0% | -26,3% |
Samtals | 580 | 644 | 478 | -17,6% | -25,8% |
Smelltu hér til að skoða tímaraðir frá árinu 2005 í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.