Þjóðskrá Íslands hefur tekið saman fjölda erlendra ríkisborgara sem eru búsettir hér á landi eftir sveitarfélögum. Tölurnar miðast við 7. mars 2018. Hlutfall erlendra ríkisborgara er misjafnt milli sveitarfélaga eða frá tæpum 35% niður í 0%. Að jafnaði er hlutfallið um 11%. Flestir erlendir ríkisborgarar eru skráðir með búsetu í Mýrdalshreppi eða alls 34,9% íbúa hreppsins. Alls eru nú í marsmánuði 222 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu í Mýrdals-hreppi af alls 637 íbúum hreppsins. Næsthæsta hlutfall erlendra ríkisborgara er í Skeiða- og Gnúpverjahreppi þar sem 30% íbúa eru með erlent ríkisfang. Á eftir koma Skútustaðahreppur með 24,5% og Skaftárhreppur með 24,2%. Þess má geta að lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er í Skorradalshreppi eða 0%, þ.e. enginn íbúi með skráða búsetu í hreppnum er með erlend ríkisfang. 55 íbúar eru skráðir í Skorradalshreppi. Skagabyggð kemur næst með 1,1% þar sem einn íbúi Skagabyggðar er með erlend ríkisfang. Þegar horft er til landshluta þá er hæsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang á Suðurnesjum, eða 19,5% og Suðurland kemur næst með 15,8%. Lægsta hlutfall íbúa með erlent ríkisfang er í sveitarfélögunum á Norðurlandi vestra eða 6,2%, þ.e. 449 íbúar af 6.751. Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa og hlutfall erlendra ríkisborgara eftir sveitafélögum.
Myndin hér að neðan sýnir hlutfall íbúa með erlent ríkisfang eftir landshlutum.