Þjóðskrá27. mars 2018

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í febrúar 2018

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði. Í febrúar 2018 var 56 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 8,367 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í febrúar 2018 var 56 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 8,367 milljónir króna. Af þessum skjölum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði.

Á sama tíma var 45 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 3,309 milljónir króna.

Á sama tíma voru 30 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 3,207 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 2,160 milljónir króna. Af þessum samningum voru 11 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Á sama tíma voru 18 kaupsamningar um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 873 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 505 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar