Laugardaginn 26. maí, þegar fram fara kosningar til sveitarstjórna verður Þjóðskrá Íslands með símavakt á milli kl. 10 og 22 þar sem meðal annars verða veittar upplýsingar um skráningu á kjörskrá. Símanúmerið er 515-5300. Einnig má hafa samband með tölvupósti á stjornsyslusvid@skra.is
Ýmsar gagnlegar upplýsingar um kosningarnar, svo sem upplýsingar um kjörstaði og utankjörfundaratkvæðagreiðslu, er að finna á kosning.is.