Þjóðskrá24. maí 2018

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í apríl 2018

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í apríl 2018 var 56 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 3.612 milljónir króna.

Þar af voru 31 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 3.196 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.964 milljónir króna.

Á sama tíma var 36 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.052 milljónir króna.

Þar af voru 19 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 507 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 274 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar