Þjóðskrá04. júlí 2018

Íbúafjöldi eftir sveitarfélögum - júlí 2018

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 1.052 á tímabilinu 1. desember sl. til 1. júlí.

Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 1.052 á tímabilinu 1. desember sl. til 1. júlí. Ekki fjölgaði um jafnmarga á þessu tímabili í neinu öðru sveitarfélagi,  hlutfallsleg aukning var um 0,8% í höfuðborginni. Það sveitarfélag sem var með næst mestu fjölgun íbúa var Reykjanesbær með 732 sem gerir 4,1% fjölgun frá 1. desember sl. 

Tafla yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum. 

Mesta hlutfallslega aukning íbúa á tímabilinu var í Árneshreppi eða um 14,6% en íbúum í þessum fámennasta hreppi landsins fjölgaði um 6 eða úr 41 í 47 íbúa. Umtalsverð hlutfallsleg aukning var á umræddu tímabili í sveitarfélögunum í Vestur-Skaftafellssýslu. Í Mýrdalshreppi nam fjölgunin 6,9% sem er fjölgun úr 626 í 669 íbúa. Fjölgunin í Skaftárhreppi nam 4,3%, fór úr 564 í 588 íbúa. Þess má geta að í 72 sveitarfélögum fækkaði íbúum í 19 á umræddu tímabili. Mest var hlutfallsleg fækkun í sveitarfélaginu Skagaströnd eða um 5,4% og í Norðurþingi um 4,8%. 

Fjölgun varð í öllum landshlutum nema einum. Hlutfallslega var mesta fjölgunin á Suðurnesjum eða um 3,5% og á Suðurlandi og Austurlandi um 1,7%. Eina fækkunin í landshluta var á Norðurlandi eystra eða um 0,1% sem er fækkun um 42 einstaklinga. 

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar