Þjóðskrá Íslands hefur tekið upp umsóknarferli varðandi skráningu námsmanna á Norðurlöndunum á kjörskrá fyrir íbúakosningar í Sveitarfélaginu Árborg þann 18. ágúst nk.
Umræddir námsmenn sem áttu síðast skráð lögheimili í sveitarfélaginu þurfa nú að tilkynna það rafrænt til Þjóðskrár Íslands að þeir séu námsmenn til þess að vera teknir á kjörskrá fyrir íbúakosningarnar.
Þeir námsmenn sem áttu síðast skráð lögheimili í Sveitarfélaginu Árborg og sóttu um fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 26. maí sl., þurfa ekki að sækja um aftur.
Tilkynninguna skal senda rafrænt á eyðublaði K-101 sem er að finna á vef Þjóðskrár Íslands. Tilskilið er að framvísa staðfestingu á námsvist.
Gert er ráð fyrir því að makar og skyldulið námsmanna tilkynni sig á sama hátt með tilvísun í viðkomandi námsmann.