Þjóðskrá12. september 2018

Velta á markaði 31.ágúst - 6.sept 2018

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 31. ágúst til og með 6. september 2018 var 199. Þar af voru 154 samningar um eignir í fjölbýli, 31 samningur um sérbýli og 14 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 10.451 milljón króna og meðalupphæð á samning 52,5 milljónir króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 31. ágúst til og með 6. september 2018 var 199. Þar af voru 154 samningar um eignir í fjölbýli, 31 samningur um sérbýli og 14 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 10.451 milljón króna og meðalupphæð á samning 52,5 milljónir króna.

Á sama tíma var 18 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum*. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli, 10 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 641 milljónir króna og meðalupphæð á samning 35,6 milljónir króna.

Á sama tíma var 13 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 8 samningar um eignir í fjölbýli, 4 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 412 milljónir króna og meðalupphæð á samning 31,7 milljónir króna.

Á sama tíma var 10 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu**. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 364 milljónir króna og meðalupphæð á samning 36,4 milljónir króna.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

Velta á markaði vikuna 31. ágúst til og með 6. september
Svæði Samtals Fjölbýli Sérbýli Aðrar eignir Meðaltal sl.
12 vikna
Höfuðborgarsvæðið
Reykjavík 115 94 15 6 90
Seltjarnarnes 6 3 2 1 3
Mosfellsbær 19 12 5 2 10
Kópavogur 26 21 5 0 24
Hafnarfjörður 22 14 4 4 19
Garðabær 11 10 0 1 11
Samtals 199 154 31 14 158
Velta (millj. kr.) 10.451 7.936
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 52,5 50,3
Suðurnes 18 6 10 2 19
Velta (millj. kr.) 641 700
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 35,6 36,9
Akureyri 13 8 4 1 14
Velta (millj. kr.) 412 516
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 31,7 35,8
Árborgarsvæðið 10 1 8 1 10
Velta (millj. kr.) 364 338
Meðaltal (millj. kr. pr. samn.) 36,4 32,4

 

* Sveitarfélögin Reykjanesbær, Grindavík, Sandgerði, Garður og Vogar.
** Sveitarfélögin Árborg, Hveragerði og Ölfus.

 

Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar