Þjóðskrá19. september 2018

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í ágúst 2018

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 191 stig í ágúst 2018 (janúar 2011=100) og hækkar um 2,9% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,8%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 191 stig í ágúst 2018 (janúar 2011=100) og hækkar um 2,9% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,4% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,8%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í ágúst 2018.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 760 samningar, sem þinglýst var í ágúst 2018. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í ágúst 2018 eru því unnar upp úr 596 leigusamningum sem þinglýst var í ágúst 2018.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í ágúst 2018 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

4854

3205

2541

2423

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3188

3055

2841

2208

Kópavogur

3120

2904

2432

2428

Garðabær og Hafnarfjörður

-

2714

2281

2545

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

3261

2871

2474

1965

Breiðholt

3382

2938

2601

1890

Kjalarnes og Mosfellsbær

2712

2436

2264

2504

Suðurnes

-

2154

1803

1678

Vesturland

-

2255

-

1299

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

1325

1194

Akureyri

3679

2285

1940

1738

Austurland

-

1444

1197

1473

Suðurland

-

2121

1880

1387

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar