Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.
Í ágúst 2018 var 59 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 3.692 milljónir króna.
Þar af voru 46 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 2.513 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.640 milljónir króna.
Á sama tíma var 41 skjali (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 878 milljónir króna.
Þar af var 21 kaupsamningur skráður í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 656 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 425 milljónir króna.
Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.