Þjóðskrá08. október 2018

Stofnun hjúskapar og lögskilnaðir í september 2018

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands stofnuðu 274 einstaklingar til hjúskapar í september en 128 einstaklingar skildu

Samkvæmt Þjóðskrá Íslands stofnuðu 274 einstaklingar til hjúskapar í september en 128 einstaklingar skildu.

Hjúskapur
Ef horft er til síðustu missera þá hefur dregið nokkuð úr stofnun hjúskapar hér á landi. Að venju er júlí vinsælasti mánuður ársins en ágúst er næst vinsælastur. Í fyrra gengu 438 einstaklingar í hjúskap í september og 272 einstaklingar árið 2016. Árið 2017 var metár í fjölda giftinga hér á landi. 

Skilnaðir
Að jafnaði skráðu 115 einstaklingar sig úr hjúskap í hverjum mánuði á síðasta ári en nú í ár er fjöldinn nokkuð  lægri eða  104 einstaklingar.  

Þjóðskrá Íslands birtir hér eftir upplýsingar mánaðarlega um stofnun hjúskapar og lögskilnaði samkvæmt skráningu þjóðskrár.  

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar