Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í október 2018 var 633. Heildarvelta nam 34,2 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 54 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 22,3 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 8,1 milljarði og viðskipti með aðrar eignir 3,8 milljörðum króna.
Þegar október 2018 er borinn saman við september 2018 fækkar kaupsamningum um 10,5% og velta minnkar um 5,1%. Í september 2018 var 707 kaupsamningum þinglýst, velta nam 36 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 51 milljón króna.
Þegar október 2018 er borinn saman við október 2017 fækkar kaupsamningum um 1,4% og velta eykst um 10,7%. Í október 2017 var 642 kaupsamningum þinglýst, velta nam 30,9 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 48,1 milljónir króna.
Makaskiptasamningar voru 9 í október 2018 eða 1,5% af öllum samningum. Í september 2018 voru makaskiptasamningar 7 eða 1,1% af öllum samningum. Í október 2017 voru makaskiptasamningar 8 eða 1,3% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.
Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.
September 2018 |
Október 2018 |
Breyting |
||||
---|---|---|---|---|---|---|
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
|
Fjölbýli |
23.841 |
543 |
22.346 |
492 |
-6,3% |
-9,4% |
Sérbýli |
9.536 |
120 |
8.065 |
102 |
-15,4% |
-15,0% |
Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði |
2.654 |
44 |
3.775 |
39 |
42,3% |
-11,4% |
Samtals |
36.031 |
707 |
34.186 |
633 |
-5,1% |
-10,5% |
Október 2017 |
Október 2018 |
Breyting |
||||
---|---|---|---|---|---|---|
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
Velta |
Fjöldi |
|
Fjölbýli |
22.616 |
509 |
22.346 |
492 |
-1,2% |
-3,3% |
Sérbýli |
6.992 |
96 |
8.065 |
102 |
15,4% |
6,3% |
Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði |
1.285 |
37 |
3.775 |
39 |
193,8% |
5,4% |
Samtals |
30.893 |
642 |
34.186 |
633 |
10,7% |
-1,4% |
|
Október 2017
|
September 2018
|
Október 2018
|
Breyting á milli ára
|
Breyting á milli mánaða
|
---|---|---|---|---|---|
Samningar
|
605
|
663
|
594
|
-1,8%
|
-10,4%
|
Makaskipti eða lausafé
|
8
|
9
|
9
|
12,5%
|
0%
|
Makaskipti
|
8
|
7
|
9
|
12,5%
|
28,6%
|
Lausafé
|
0
|
2
|
0
|
-
|
-
|
Hlutfall makaskipta
|
1,3%
|
1,1%
|
1,5%
|
-
|
-
|
Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.
Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.