Samkvæmt Þjóðskrá Íslands stofnuðu 162 einstaklingar til hjúskapar í október en 85 einstaklingar skildu.
Hjúskapur
Af þeim 162 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í október gengu 78 í hjúskap hjá sýslumanni eða 58% og 58 giftu í þjóðkirkjunni (38,7%), 18 einstaklingar gengu í hjúskap í trúfélagi utan þjóðkirkju og 8 einstaklingar giftu sig erlendis.
Alls gengu 3.950 manns í hjónaband á síðasta ári og var það metár. Það sem af er þessu ári þá hafa 3.251 gengið í hjónaband. Þess má geta að hlutur Þjóðkirkjunnar í hjónavígslum hefur farið minnkandi hin síðari ár. Um aldamót var hlutur Þjóðkirkjunnar rúmlega 71% en er á yfirstandandi ári kominn niður fyrir 50%. Á sama tímabili jókst hlutur hjónavígsla hjá sýslumanni úr rúmlega 13% í rúmlega 31% og hlutur annarra trúfélaga úr 7% í 15,3%.Skilnaðir
Af þeim 85 einstaklingum sem skildu í október þá var 81 lögskilnaður framkvæmdur hjá sýslu-manni, 4 fyrir dómi og 2 lögskilnaðir voru framkvæmdir erlendis.