Hlutfallslega mest fjölgun í Mýrdalshreppi
Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Mýrdalshrepps mest eða um 10,9% en íbúum þar fjölgaði úr 626 í 694 íbúa.
Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Reykhólahrepp um 7,2% og í Norðurþingi um 7,0%. Þess má geta að af öllum 72 sveitarfélögum landsins þá fækkaði íbúum í 21 sveitarfélagi á umræddu tímabili.
Fjölgun í öllum landshlutum nema Norðurlandi eystra
Fjölgun hefur orðið í öllum landshlutum nema Norðurlandi eystra. Hlutfallslega fjölgaði íbúum mest á Suðurnesjum eða um 5,2% og á Suðurlandi um 3,3%. Á Norðurlandi eystra fækkaði íbúum hins vegar um 0,2%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017.
Þjóðskrá Íslands birtir hér eftir mánaðarlega upplýsingar um íbúafjölda eftir sveitarfélögum. Upplýsingarnar byggjast á skráðri búsetu einstaklinga í þjóðskrá þann 1. hvers mánaðar.