Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.
Í nóvember 2018 var 35 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 16.804 milljónir króna.
Þar af voru 15 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 2.332 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.229 milljónir króna.
Á sama tíma var 54 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 725 milljónir króna.
Þar af var 17 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 815 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 329 milljónir króna.
Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.
Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.