Flestir erlendir ríkisborgarar eru frá Póllandi
Flestir erlendir ríkisborgarar eru frá Póllandi eða 19.269 og 4.093 einstaklingar eru með litháískt ríkisfang.
Pólskum ríkisborgurum fjölgaði um 79 á síðastliðnum mánuði en litháískum ríkisborgurum fækkaði um 1 einstakling á sama tímabili.
Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað um 67,6% á þremur árum
Frá 1. desember 2015 til 1. desember 2018 hefur erlendum ríkisborgurum sem eru skráðir til heimilis hér á landi fjölgað úr 26.387 í 44.156 manns. Þetta er fjölgun sem nemur 67,6%. Á sama tímabili hefur hlutfall landsmanna með erlent ríkisfang aukist úr 7,9% í 12,4%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2017 og 2018 og þann 1. janúar sl.