Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 193,6 stig í desember 2018 (janúar 2011=100) og lækkar um 0,7% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 7,8%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.
Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.
Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Leiguverð
Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í desember 2018.
Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 459 samningar, sem þinglýst var í desember 2018. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í desember 2018 eru því unnar upp úr 332 leigusamningum sem þinglýst var í desember 2018.
Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í desember 2018 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.
Stúdíó íbúð |
2 herbergja |
3 herbergja |
4-5 herbergja |
|
---|---|---|---|---|
Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes |
5195 |
3030 |
2646 |
2651 |
Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar |
3562 |
2837 |
2703 |
2623 |
Kópavogur |
- |
2745 |
2391 |
2139 |
Garðabær og Hafnarfjörður |
- |
2959 |
2292 |
1849 |
Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur |
- |
2781 |
2567 |
2282 |
Breiðholt |
- |
3077 |
2460 |
2274 |
Kjalarnes og Mosfellsbær |
2430 |
- |
2155 |
- |
Suðurnes |
- |
2500 |
1906 |
1916 |
Vesturland |
- |
2119 |
1746 |
1744 |
Vestfirðir |
- |
- |
- |
- |
Norðurland nema Akureyri |
- |
1479 |
1337 |
- |
Akureyri |
- |
2161 |
2308 |
1921 |
Austurland |
- |
- |
- |
- |
Suðurland |
- |
2107 |
1614 |
1282 |
Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.