Samkvæmt skráningu í Þjóðskrá Íslands stofnuðu 352 einstaklingar til hjúskapar í desember sl. en 90 einstaklingar skildu.
Alls hafa 3.879 einstaklingar gengið í hjónaband á síðasta ári samanborið við 3.941 á árinu 2017.
Hjúskapur
Af þeim 352 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í síðasta mánuði gengu 136 í hjúskap hjá sýslumanni (38,6%), 176 giftu sig í Þjóðkirkjunni (50%), 38 einstaklingar gengu í hjúskap í trúfélagi utan þjóðkirkju (10,8%) og 2 einstaklingar giftu sig erlendis.Alls hafa 3.879 einstaklingar gengið í hjónaband á síðasta ári samanborið við 3.941 á árinu 2017.
Skilnaðir
Alls 90 einstaklingar skildu í desember og allir skilnaðir voru framkvæmdir hjá sýslumanni.
Á síðasta ári skildu 1.276 einstaklingar samanborið við 1.375 á árinu 2017.
Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2018.
Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum frá trú– og lífsskoðunarfélögum og sýslumannsembættum sem berast Þjóðskrá Íslands.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.