Hlutfallslega mest fjölgun í Skorradalshreppi
Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Skorradalshrepps hlutfallslega mest eða um 8,6% en íbúum þar fjölgaði úr 58 í 63 íbúa.Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Árneshreppi, um 5,0% og í Borgarfjarðarhreppi um 2,8%.
Þá fækkaði íbúum í 29 sveitarfélögum af 72 sveitarfélögum landsins í síðan frá 1. desember sl.
Fækkun í þremur landshlutum af átta
Fækkun hefur orðið í þremur landshlutum frá 1. desember sl. Mest fækkaði á Vesturlandi eða um 33 íbúa sem er 0,2% fækkun. Ennfremur var lítilsháttar fækkun á Austurlandi og Vestfjörðum.
Hlutfallslega mest fjölgun varð á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum eða um 0,4%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 824 íbúa og íbúum á Suðurnesjum um 121 íbúa.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitarfélögum þann 1. febrúar sl. og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017 og 2018.
Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu í þjóðskrá.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.