Þjóðskrá06. febrúar 2019

Fasteignamarkaðurinn á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2019

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2019 var 789. Heildarvelta nam 45,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 57,8 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 27,3 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 11,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 7 milljörðum króna.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga um fasteignir við sýslumannsembættin á höfuðborgarsvæðinu í janúar 2019 var 789. Heildarvelta nam 45,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning var 57,8 milljónir króna. Viðskipti með eignir í fjölbýli námu 27,3 milljörðum, viðskipti með eignir í sérbýli 11,3 milljörðum og viðskipti með aðrar eignir 7 milljörðum króna.

Þegar janúar 2019 er borinn saman við desember 2018 fjölgar kaupsamningum um 76,9% og velta eykst um 95,8%. Í desember 2018 var 446 kaupsamningum þinglýst, velta nam 23,3 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 52,2 milljónir króna.

Þegar janúar 2019 er borinn saman við janúar 2018 fjölgar kaupsamningum um 29,8% og velta eykst um 48,8%. Í janúar 2018 var 608 kaupsamningum þinglýst, velta nam 30,6 milljörðum króna og meðalupphæð á hvern kaupsamning 50,4 milljónir króna.

Makaskiptasamningar voru 17 í janúar 2019 eða 2,4% af öllum samningum. Í desember 2018 voru makaskiptasamningar 8 eða 1,9% af öllum samningum. Í janúar 2018 voru makaskiptasamningar 8 eða 1,4% af öllum samningum. Makaskiptasamningur er þegar hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Upplýsingar um makaskiptasamninga eiga eingöngu við um íbúðarhúsnæði.

Vakin er athygli á að meðalupphæð kaupsamnings er ekki hægt að túlka sem meðalverð eigna og þar með sem vísbendingu um verðþróun. Þetta er vegna þess að hver kaupsamningur getur verið um fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru misstórar, misgamlar o.s.frv.

 

Tafla 1. Samanburður á desember 2018 og janúar 2019

Desember 2018

Janúar 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

15.627

336

27.283

572

74,6%

70,2%

Sérbýli

5.785

77

11.254

139

94,5%

80,5%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

1.866

33

7.044

78

277,5%

136,4%

Samtals

23.278

446

45.581

789

95,8%

76,9%

 

 

 

 

Tafla 2. Samanburður á janúar 2018 og janúar 2019

Janúar 2018

Janúar 2019

Breyting

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Velta
millj.kr.

Fjöldi
kaupsamn.

Fjölbýli

20.004

448

27.283

572

36,4%

27,7%

Sérbýli

7.629

115

11.254

139

47,5%

20,9%

Aðrar eignir en íbúðarhúsnæði

3.008

45

7.044

78

134,2%

73,3%

Samtals

30.641

608

45.581

789

48,8%

29,8%

 

 

Myndin sýnir samanlagða veltu á höfuðborgarsvæðinu síðastliðna 12 mánuði

Myndin sýnir samanlagða veltu á höfuðborgarsvæðinu síðastliðna 12 mánuði 

 

Tafla 3. Fjöldi makaskipta (ath. á bara við um íbúðarhúsnæði)

 

 
Janúar 2018
Desember 2018
Janúar 2019
Breyting á milli ára
Breyting á milli mánaða
Samningar
563
413
711
26,3%
72,2%
Makaskipti eða lausafé
10
9
17
70,0%
88,9%
Makaskipti
8
8
17
112,5%
112,5%
Lausafé
2
1
0
-
-
Hlutfall makaskipta
1,4%
1,9%
2,4%
-
-


Smelltu hér til að skoða tímaraðir í Excel. Ef þú vilt ekki láta Excel opnast í vafranum, þá getur þú hægri smellt og valið „Save target/link as“ og fært skjalið niður á harða diskinn og opnað það síðan í Excel.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar