Þjóðskrá14. febrúar 2019

200.000 fasteignir á Íslandi

Í dag 14. febrúar 2019 var skráð tvöhundruð þúsundasta fasteignin á Íslandi.

Í dag 14. febrúar 2019 var skráð tvöhundruð þúsundasta fasteignin á Íslandi. Fasteign er eign sem hægt er að kaupa og selja, íbúð, jörð, iðnaðarhúsnæði, óbyggð lóð auk annarra tegunda fasteigna.

Árið 2016 voru stofnaðar 155 fasteignir á mánuði en 261 árið 2018 sem jafngildir 69% aukningu í skráningu fasteigna milli ára. Frá 2016 hefur orðið 4% aukning á heildarfjölda skráðra fasteigna á Íslandi.

Heildar fasteignamat allra fasteigna hér á landi um síðastliðin áramót var 8.451 milljarður og brunabótamat var á sama tíma 9.105 milljarðar. Fasteignamati er ætlað að endurspegla gangvirði fasteigna en brunabótamati kostnað við endurbyggingu viðkomandi fasteignar. Hækkun á heildarfasteignamati síðustu 3 ár er 55% en hækkun á heildarbrunabótamati 24%. Sjá má yfirlit yfir þessar tölfræði hér
 

Fjöldi fasteigna í árslok frá 2015 til 2018

 


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar