Þjóðskrá21. febrúar 2019

Mannfjöldabreytingar í þjóðskrá á 4. ársfjórðungi 2018

Alls voru skráðir 1.069 fæddir í þjóðskrá á 4. ársfjórðungi

Alls voru skráðir 1.069 fæddir í þjóðskrá á 4. ársfjórðungi síðasta árs, 1.434 nýskráðir erlendir ríkisborgarar og 81 nýskráður Íslendingur þ.e. íslensk börn sem fædd eru erlendis. Alls var tilkynnt um 571 andlát.


Á síðasta ári voru 4.207 fæddir einstaklingar skráðir í þjóðskrá og 9.834 skráningar erlendra ríkisborgara. Á árinu 2017 voru 4.038 skráningar fæddra einstaklinga sem gerir aukningu milli ára upp á tæp 4,2%. Hins vegar var samdráttur í skráningu erlendra ríkisborgara milli ára en á árinu 2017 voru 10.515 erlendir ríkisborgarar skráðir í þjóðskrá og er því samdráttur milli ára um 6,5%.

Hér má sjá fjölda breytinga eftir helstu flokkum eftir ársfjórðungi sl. þrjú ár.

 

 

Tölurnar byggjast á skráningu í þjóðskrá á viðkomandi tímabilum. 

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.

 

 

Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar