Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 149 einstaklingar til hjúskapar í febrúar sl. en 84 einstaklingar skildu.
Alls gengu 3.967 einstaklingar sem eru skráðir í þjóðskrá í hjónaband á síðasta ári samanborið við 3.941 á árinu 2017.
Hjúskapur
Af þeim 149 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í síðasta mánuði gengu 86 í hjúskap hjá sýslumanni (58%), 45 giftu sig í Þjóðkirkjunni (30%) og 18 einstaklingar gengu í hjúskap í trúfélagi utan þjóðkirkju (12%).Alls gengu 3.967 einstaklingar sem eru skráðir í þjóðskrá í hjónaband á síðasta ári samanborið við 3.941 á árinu 2017.
Skilnaðir
Alls skildu 84 einstaklingar í febrúarmánuði. Gengu allir frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni.
Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2019.
Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum frá trú- og lífsskoðunarfélögum og sýslumannsembættum sem berast Þjóðskrá Íslands.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.