Þjóðskrá26. mars 2019

Viðskipti með atvinnuhúsnæði í febrúar 2019

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Kaupverð og fasteignaverð á atvinnuhúsnæði síðastliðna 12 mánuði eins og skráð í Kaupskrá ÞÍ 

Mynd sýnir samanburð á kaupverði og fasteignamati atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu m.v. skráningu í kaupskrá síðastliðna 12 mánuði

 

Þjóðskrá Íslands birtir upplýsingar um umsvif á markaði með atvinnuhúsnæði.

Í febrúar 2019 var 50 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 2.528 milljónir króna.

Þar af voru 36  kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 2.791 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 1.952 milljónir króna.

Á sama tíma var 45 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði utan höfuðborgarsvæðisins þinglýst. Heildarfasteignamat seldra eigna var 944 milljónir króna.

Þar af voru 25 kaupsamningar skráðir í kaupskrá. Heildarupphæð þeirra var 517 milljónir króna og fasteignamat þeirra eigna sem samningarnir fjölluðu um 432 milljónir króna.

Meðfylgjandi Excel-skjal sýnir tímaröð með sömu upplýsingum, auk nánari sundurgreiningar.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar