Hlutfallslega mest fjölgun í Skorradalshreppi
Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Skorradalshrepps hlutfallslega mest eða um 6,9% en íbúum þar fjölgaði um fjóra íbúa eða úr 58 í 62 íbúa.Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Árneshreppi, um 5,0% og í Borgarfjarðarhreppi og Þingeyjarsveit um 2,8%.
Þá fækkaði íbúum í 26 sveitarfélögum af 72 sveitarfélögum landsins síðan frá 1. desember sl.
Fækkun í tveimur landshlutum
Fækkun hefur orðið í tveimur landshlutum frá 1. desember sl. Á Norðurlandi vestra fækkaði um 18 íbúa og á Vestfjörðum um 3 íbúa. Hlutfallslega mest fjölgun varð á Suðurlandi,þar fjölgaði um 277 íbúa eða 0,9%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 1.483 íbúa eða 0,7% og íbúum á Suðurnesjum um 212 íbúa eða 0,8%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum þann 1. apríl sl. og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017 og 2018.
Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu í þjóðskrá.
Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.
Útgáfuáætlun ÞÍ.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.