Fjölgun mest í kaþólska söfnuðinum, Siðmennt og Ásatrúarfélaginu
Á sama tímabili fjölgaði í kaþólska söfnuðinum um 246 manns eða um 1,8% og í Siðmennt um 128 manns eða um 4,5%. Aukning var einnig í Ásatrúarfélaginu eða um 105 manns sem er 2,4%.
Þess má geta að mest hlutfallsleg aukning var í Stofnun múslima á Íslandi eða um 13,6% sem er fjölgun um 26 meðlimi en í dag eru 217 félagar skráðir í trúfélagið.
Fjölgar hjá þeim sem eru utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 25.137 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. apríl sl. og fjölgaði þeim um 374 frá 1. desember 2018 um 1,5%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. apríl sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018.
Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu í þjóðskrá.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.