Flestir erlendir ríkisborgarar eru frá Póllandi
Flestir erlendir ríkisborgarar búsettir hér á landi eru frá Póllandi eða 19.564 og 4.281 einstaklingar eru með litháískt ríkisfang. Alls eru 43% af öllum erlendum ríkisborgurum sem búsettir eru hér á landi pólskir.
Pólskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 374 frá 1. desember 2018 og litháískum ríkisborgurum fjölgaði um 187 á sama tímabili.
Hlutfall íbúa með erlent ríkisfang hefur aukist frá 1. desember 2017 úr 10,9% af heildar íbúafjölda landsins í 12,7%.
Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað um 20,4% á meðan íslenskum ríkisborgurum sem búsettir eru hér á landi fjölgaði um 0,9% frá 1. desember 2017.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir ríkisfangi þann 1. desember 2017, 1. desember 2018 og þann 1. apríl 2019.
Þessar tölur eru byggðar á skráningu úr þjóðskrá á fjölda einstaklinga sem eru skráðir með búsetu hér á landi eftir ríkisfangi.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.