Alls voru skráðir 1.013 nýfæddir einstaklingar á 1. ársfjórðungi ársins, 1.402 nýskráðir erlendir ríkisborgarar og 48 nýskráðir Íslendingar en það eru íslensk börn sem fædd eru erlendis. Alls var tilkynnt um 563 andlát.
Á síðasta ári voru 4.208 nýfæddir einstaklingar skráðir í þjóðskrá og 10.290 skráningar erlendra ríkisborgara. Á árinu 2017 voru 4.038 skráningar nýfæddra einstaklinga sem gerir aukningu milli ára upp á tæp 4,2%. Hins vegar var samdráttur í skráningu erlendra ríkisborgara milli ára en á árinu 2017 voru 10.515 erlendir ríkisborgarar skráðir í þjóðskrá og er því samdráttur milli ára um 2,1%.
Hér má sjá fjölda breytinga eftir helstu flokkum eftir ársfjórðungi sl. þrjú ár.
Öllum eru heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.
Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.