Þjóðskrá Íslands hefur aldrei mælst ofar í traustskönnun sem Gallup framkvæmdi fyrir skömmu. Í könnuninni var spurt um traust til stofnunarinnar og hversu vel einstaklingar þekkja til þjónustu og starfsemi Þjóðskrár Íslands.
- 96% svarenda þekkja til starfsemi Þjóðskrár Íslands.
- 70% svarenda bera mikið traust til Þjóðskrár Íslands.
- Einungis 3% svarenda bera lítið traust til Þjóðskrár Íslands.
- Í samanburði Gallup við aðrar stofnanir er Þjóðskrá Íslands á meðal þeirra efstu ásamt Landhelgisgæslunni, Embætti forseta Íslands og Lögreglunni.
Nánari niðurstöður úr könnun Gallup og samanburð við aðrar stofnanir.