Hlutfallslega mest fjölgun í Skorradalshreppi
Þegar horft er til alls landsins þá fjölgaði íbúum Skorradalshrepps hlutfallslega mest eða um 12,1% en íbúum þar fjölgaði um sjö íbúa eða úr 58 í 65 íbúa.Íbúum fækkaði hlutfallslega mest í Árneshreppi, um 5,0% og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi um 4,4%.
Þá fækkaði íbúum í 22 af 72 sveitarfélögum landsins síðan frá 1. desember sl.
Íbúum fækkar lítillega á Norðurlandi vestra
Lítilleg fækkun hefur orðið á Norðurlandi vestra frá 1. desember sl. eða um 12 manns (-0,2%).
Hlutfallslega mest fjölgun varð á Suðurlandi, þar fjölgaði um 366 íbúa eða 1,2%. Íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgaði um 1.685 íbúa eða 0,7% og íbúum á Suðurnesjum fjölgaði um 247 íbúa eða 0,9%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda íbúa eftir sveitafélögum þann 1. maí sl. og samanburð við íbúatölur frá 1. desember 2017 og 2018.
Tölurnar byggja á skráningu einstaklinga í sveitarfélög samkvæmt skráningu í þjóðskrár Íslands.
Skrá á póstlista markaðsfrétta ÞÍ.
Útgáfuáætlun ÞÍ.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.