Samkvæmt skráningu í þjóðskrá stofnuðu 157 einstaklingar til hjúskapar í apríl sl. en 87 einstaklingar skildu.
Hjúskapur
Af þeim 157 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í síðasta mánuði gengu 88 í hjúskap hjá sýslumanni eða 56,1%, 48 giftu sig í Þjóðkirkjunni eða 30,1% og 18 einstaklingar gengu í hjúskap í trúfélagi utan þjóðkirkju eða 11,5%.Skilnaðir
Alls skildu 87 einstaklingar í aprílmánuði. Gengu 79 frá lögskilnaði sínum hjá sýslumanni, 4 gengu frá lögskilnaði fyrir dómstólum og 4 skildu í útlöndum.
Hér má sjá lista yfir fjölda einstaklinga sem gengu í hjúskap og skildu á árunum 1990 til 2019.
Ath. tölurnar byggjast á tilkynningum um lögskilnað og stofnun hjúskapar til Þjóðskrár Íslands.
Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar