Þjóðskrá Íslands birti í gær frétt um fjölda íbúða í byggingu eins og þær eru skráðar í fasteignaskrá. Þessar tölur hafa varpað ljósi á þá tímaskekkju sem eru í skráðum fjölda íbúða í byggingu annars vegar og fjölda nýbygginga samkvæmt talningu hins vegar.
Í tillögum átakshóps ríkisstjórnarinnar um aukið framboð á íbúðum og aðrar aðgerðir til að bæta stöðu á húsnæðismarkaði segir að opinberir aðilar, sem hafa það hlutverk að safna og miðla upplýsingum um húsnæðismál, skulu vinna í samstarfi að sameiginlegum skilgreiningum sem hægt verði að styðjast við í greiningum á upplýsingagjöf húsnæðismála.
Með vísan til þess þá hefur Þjóðskrá Íslands ákveðið að bíða með frekari birtingu.