Alls hefur skráðum í Þjóðkirkjuna fækkað um 567 manns á tímabilinu frá 1. desember á síðasta ári til 1. júní. Nú eru 232.105 einstaklingar skráðir í Þjóðkirkjuna.
Fjölgun mest í kaþólska söfnuðinum
Á sama tímabili fjölgaði í kaþólska söfnuðinum um 375 manns eða um 2,7% og í Siðmennt um 202 manns eða um 7,2%. Aukning var einnig í Ásatrúarfélaginu eða um 137 manns sem er 3,1%.Fjölgar hjá þeim sem eru utan trú- og lífsskoðunarfélaga
Alls voru 25.343 einstaklingar skráðir utan trú- og lífsskoðunarfélaga þann 1. júní sl. og fjölgaði þeim um 580 frá 1. desember 2018 eða um 2,3%.
Hér má sjá töflu yfir fjölda skráðra eftir trú- og lífsskoðunarfélög þann 1. júní sl. og samanburð við tölur frá 1. desember 2017 og 2018.