Þjóðskrá19. júní 2019

Upplýsingar um leiguverð íbúðarhúsnæðis í maí 2019

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 195,6 stig í maí 2019 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 4,8%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Mynd sem sýnir þróun vísitölu leiguverðs síðastliðna 12 mánuði

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 195,6 stig í maí 2019 (janúar 2011=100) og hækkar um 0,3% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,5% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 4,8%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.

Íbúðarhúsnæði er skipt í flokka eftir herbergjafjölda og staðsetningu. Reiknað er meðalfermetraverð fyrir 6 flokka íbúðarhúsnæðis. Niðurstaðan er vegin með hlutdeild viðkomandi flokks í heildarverðmæti á markaði miðað við undangengna 12 mánuði.

Birtingu vísitölunnar er ætlað að varpa ljósi á þróun leiguverðs samkvæmt þeim gögnum sem liggja fyrir á hverjum tíma. Þjóðskrá Íslands áskilur sér rétt til að endurskoða vísitöluna aftur í tímann í ljósi fyllri gagna eða fágaðri aðferðafræði. Vísitalan er ekki ætluð til að verðtryggja fjárskuldbindingar.
Tímaröð fyrir vísitöluna er hægt að skoða í Excel skjali.

Leiguverð

Teknar hafa verið saman upplýsingar um leiguverð eftir staðsetningu og stærðarflokkum fasteigna á landinu í maí 2019.

Í leigugagnagrunni Þjóðskrár eru 682 samningar, sem þinglýst var í maí 2019. Við úrvinnslu talnaupplýsinga um leiguverð var leigusamningum sem eru eldri en 60 daga við þinglýsingu, samningum þar sem herbergjafjöldi íbúða er ekki þekktur, samningum um félagslegar íbúðir o.fl. sleppt. Talnaupplýsingar um leiguverð í maí 2019 eru því unnar upp úr 532 leigusamningum sem þinglýst var í maí 2019.

Eftirfarandi tafla sýnir meðalleiguverð á hvern fermetra í maí 2019 fyrir mismunandi stærðir íbúða og staðsetningu.

Svæði

Stúdíó íbúð

2 herbergja

3 herbergja

4-5 herbergja

Reykjavík, vestan Kringlumýrarbrautar og Seltjarnarnes

3916

3237

2712

2514

Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar

3674

2880

3051

2495

Kópavogur

-

3069

2434

2279

Garðabær og Hafnarfjörður

3510

3039

2444

2267

Grafarvogur, Grafarholt, Árbær, Norðlingaholt og Úlfarsárdalur

-

2833

2471

2313

Breiðholt

-

2969

2623

1947

Kjalarnes og Mosfellsbær

-

3020

2568

-

Suðurnes

3852

2282

1918

1532

Vesturland

-

1900

1763

1538

Vestfirðir

-

-

-

-

Norðurland nema Akureyri

-

-

1162

1069

Akureyri

-

2129

2064

1863

Austurland

-

1584

1191

-

Suðurland

-

2235

1600

1523

 

Í Excel skjali eru sömu upplýsingar auk staðalfráviks,upplýsinga um fjölda leigusamninga, meðalbyggingarár og meðalflatarmál leigðra eigna í hverjum flokki auk eldri gagna. Meðaltöl eru birt ef þrír eða fleiri samningar eru í úrtaki flokks og staðalfrávik fyrir fimm eða fleiri samninga.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar