Þjóðskrá01. júlí 2019

Innskráningarþjónusta Ísland.is og Íslyklar í júní 2019

Innskráningarþjónusta Ísland.is býður upp á innskráningu inn á vefi yfir 200 þjónustuveitenda og að jafnaði 25 þúsund manns nýta sér þjónustuna daglega.

Innskráningarþjónusta Ísland.is býður upp á innskráningu inn á vefi yfir 200 þjónustuveitenda og að jafnaði 25 þúsund manns nýta sér þjónustuna daglega. Í júní 2019 voru samtals 788.530 innskráningar. Í júní 2018 voru innskráningar samtals 510.496 og fjölgar því innskráningum um 54% frá sama tíma í fyrra. Samtals hafa 9.308.060 innskráningar verið skráðar síðastliðna 12 mánuði.

Íslykill er hluti af innskráningarþjónustu Ísland.is en þar er líka hægt að nota rafræn skilríki í síma og á kortum. Þann 3. júní 2019 höfðu verið gefnir út 279.742 Íslyklar til einstaklinga og 16.786 til fyrirtækja. Hlutfallsleg notkun innskráningarleiða síðastliðinn mánuð er: Íslykill 33,44%, rafræn skilríki á korti 0,34% og rafræn skilríki í farsíma 65,79%.

Hægt er að nálgast ofangreindar upplýsingar í meðfylgjandi excel skjali.

Skrá á póstlista ÞÍ.

Útgáfuáætlun ÞÍ.

Öllum er heimil afnot af fréttinni og meðfylgjandi gögnum en vinsamlegast getið heimildar.


Skrá mig á póstlista

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun Þjóðskrár.

Skoða nánar